The panoramic picture above, taken near Siglufjörður (northern Iceland), has been selected by Forlagið Publishings for the cover of the icelandic book Íslenskt vættatal. This was our first publishing in Iceland.

“Þekkir þú Ullartásu, Bjálfans barnið, jólasveininn Redda, Hafnarskottu, drauginn Flóalalla, álfadrottninguna Bóthildi, kvendrauginn Hrúgu, Urðarbola, Úríði eða Villa gamla úr Esjunni?
Íslenskt vættatal segir frá íbúum huliðsheima sem birst hafa alþýðu manna hér á landi í aldanna rás og allt fram á þennan dag. Hér má finna upplýsingar um álfa og huldufólk, tröll, dverga, kynjadýr, loftanda, jólasveina, fornmenn, landvætti, goðverur og drauga.

_

Í bókinni eru nafngreindar helstu hollvættir og meinvættir í íslenskum sagnaarfi. Þeim er raðað í starfrófsröð og getið heimkynna, uppruna og helstu afreka þeirra. Vísað er í þjóðsagnasöfn og margvíslegar heimildir til frekari fróðleiks um verunar og greinargóð kort benda á helstu dvalarstaði þeirra. Bókin hentar því einstaklega vel öllum sem vilja kynnast landinu og vættunum sem það geymir, hvort sem þeir leggja land undir fót eða láta hugann reika.
_

Árni Björnsson, sem þjóðkunnur er fyrir yfirburða þekkingu á íslenskum þjóðháttum, tók vættatalið saman og ritar auk þess inngang þess og eftirmála. Ritið hefur verið ófáanlegt um árabil en birtist nú í nýjum búningi, ríkulega aukið og endurbætt.”

Íslenskt vættatal
Árni Björnsson
Forlagið Publishings